Innlent

Borgin vill starfsfólk Hörpunnar í strætó

Borgin segir að leysa verði fyrirséða bílastæðaeklu með heildstæðri samgöngustefnu en ekki með landfyllingu.Fréttablaðið/GVA
Borgin segir að leysa verði fyrirséða bílastæðaeklu með heildstæðri samgöngustefnu en ekki með landfyllingu.Fréttablaðið/GVA
„Mér finnst dálítið mikið að ætlast til þess að Harpa ein standi fyrir því að kollvarpa ferðavenjum Reykvíkinga," segir Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar sem á og rekur tónlistarhúsið Hörpu.

Totus, fasteignafélag Hörpu, fær ekki góðar undirtektir hjá skipulagsyfirvöldum Reykjavíkur við þeirri ósk að bráðabirgðalandfylling austan við húsið standi áfram og verði nýtt undir bílastæði.

Í bréfi frá Totus segir að miðað við lóðahönnun verði sex stæði fyrir hópferðabíla, sextán stæði fyrir fólks- og sendibíla og áttatíu stæði fyrir reiðhjól við Hörpu. Að auki verði 545 stæði í bílastæðahúsi, þar af 420 stæði hugsuð fyrir gesti Hörpu en 125 fyrir þá sem eiga annað erindi í miðbæinn.

Á bilinu 180 til 200 manns verði að störfum í húsinu að jafnaði og allt að 300 að hámarki. Mikil þörf sé á bílastæðum fyrir þennan hóp sem annars tæki stæði frá íbúum í miðbænum og viðskiptavinum þar. Þá sé aðstaða fyrir hópferðabíla ófullnægjandi og aðstaða fyrir flutning á tækjum að húsinu takmörkuð. Allt þetta „muni að óbreyttu koma verulega niður á rekstri hússins".

Stefán segir að upphaflega hafi skipulag á svæðinu gert ráð fyrir að öll starfsemin þar, Harpa, Landsbankinn og fyrirhugað hótel, gæti samnýtt tæplega tvö þúsund bílastæði, enda hefðu annatímar verið mjög ólíkir. „En nú er Harpan þarna ein og nýtur ekki þessarar samnýtingar," segir Stefán. „Og þegar mikið er um að vera þá er greinilegt að 525 stæði eru engan veginn nóg fyrir gesti og starfsmenn í tónlistarhúsinu."

Skipulagsráð hefur hins vegar samþykkt umsögn frá skipulagsstjóra þar sem fram kemur að áðurnefnda landfyllingu verði að fjarlægja. Rekstraraðilar Hörpu ættu að ræða við rekstraraðila almenningsvagna og sína starfsmenn um heildstæða samgöngustefnu sem meðal annars ætti að draga úr þörfum á bílastæðum.

„Það er ágætt að gera það og ég held að starfsmenn hafi nú þegar talað við Strætó og óskað eftir því að Strætó hefji viðkomu við Hörpu sem fyrst. En ég held að það dugi hvergi nærri til, jafnvel þótt menn tvöfölduðu eða þrefölduðu það hlutfall sem kæmi með strætó."

- gar, sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×