Innlent

Minningarathöfn um Sævar Ciesielski

Sævar Ciesielski.
Sævar Ciesielski. Mynd/GVA
Minningarathöfn um Sævar Ciesielski verður haldin í Vor Frelserers Kirke við Prinsessugötu í Kristjánshöfn í Kaupmannahöfn á morgun klukkan 14.00. Athöfnin er öllum opin.

Sævar lést af slysförum í Kaupmannahöfn í síðustu viku. Enn er óvíst hvenær útför Sævars fer fram, en jarðneskar leifar hans verða fluttar heim til Íslands á morgun.

Sævar lætur eftir sig fimm börn á aldrinum tólf til 36 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×