Innlent

Annar stór jarðskjálfti

Auk stærsta jarðskjálftans sem varð klukkan rúmlega níu í morgun í Krýsuvík, upp á 4 stig, kom annar stór skjálfti klukkan 9:49 og mældist sá skjálfti upp á 3,3 stig samkvæmt vef Veðurstofunnar. Jarðskjálftinn fannst til dæmis mjög vel í Árbænum.

Yfir 200 jarðskjálftar hafa mælst á Krýsuvíkursvæðinu frá miðnætti og hafa nokkrir þeirra mælst yfir þremur stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×