Viðskipti erlent

FT: 2000 milljarða dollara stormur skellur á jörðina

Financial Times kallar fyrirbærið 2000 milljarða dollara storminn. Þessi stormur skellur að öllum líkindum á jörðinna árið 2013 og gæti truflað fjarskipti og raftæki svo mánuðum skiptir.

Um er að ræða rafsegulstorm frá sólunni af áður óþekktri stærðargráðu. Bandarískir og breskir stjarnvísindamenn hafa varað við því að stormurinn skelli á jörðina eftir tvö ár með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Stormurinn mun myndast þar sem saman fari hápunkturinn á 11 ára sveiflu í virkni sólarinnar ásamt miklum sólgosum. Um 20 tímum eftir að stormurinn hefst skellur hann á jörðinni.

Afleiðingarnar verða þær að raftæki slá út sem og tölvur og tölvubúnaður sem notaður er til rekstrar fjarskiptatækja og flugstjórnarkerfa. Því megi reikna með að öll fjarskipti liggi niðri sem og flug meðan á storminum stendur en sá tími getur skipt mánuðum.

Síðast þegar svipað gerðist á jörðinni var árið 1859 en þá sló rafsegulstormur út allt þáverandi símakerfi heimsins en það var nýkomið í gagnið.

Bandarísk stjórnvöld hafa áætlað að tjónið eftir tvö ár geti numið 2.000 milljörðum dollara eða hinni stjarnfræðilegu upphæð 230.000 milljörðum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×