Nítján starfsmenn handteknir í húsleitunum 8. mars 2011 18:22
Nítján starfsmenn Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í samhliða húsleit ríkislögreglustjóra og Samkeppniseftirlitsins í dag. Lagt var hald á gögn og muni í þágu rannsóknarinnar. Allir starfsmennirnir nítján eru nú frjálsir ferða sinna og yfirheyrslum yfir þeim lokið. Til rannsóknar eru ætluð brot á banni samkeppnislaga við samráði keppninauta um meðal annars verð, gerð tilboða og skiptingu markaða. „Samkvæmt 41. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005 varðar það starfsmenn fyrirtækja sektum eða fangelsi allt að sex árum ef þeir framkvæma, hvetja til eða láta framkvæma samráð milli keppinauta, m.a. um verð," segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. Rannsókn ríkislögreglustjóra beindist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins, en þau brot sæta rannsóknlögreglu að undangenginni kæru stofnunarinnar. „Samhliða rannsókn lögreglu á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á banni við ólögmætu samráði, en slík brot varða fyrirtæki m.a. stjórnvaldssektum," segir á vef ríkislögreglustjóra. Við aðgerðina naut ríkislögreglustjóri og Samkeppniseftirlitið aðstoðar starfsmanna sérstaks saksóknara, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórans á Suðurnesjum.
Mest lesið Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Kajakræðarar í hættu hífðir upp Innlent Önnur djúp lægð á leiðinni Veður Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Erlent Bíll alelda á Hellisheiði Innlent Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Erlent Fleiri fréttir Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Sjá meira