Hótel d´Angleterre lokar fram á næsta ár 8. mars 2011 09:27
Hið sögufræga hótel d´Angleterre verður lokað frá júní í sumar og fram til febrúar á næsta ári. Hinir nýju eigendur hótelsins, sem eitt sinn var í íslenskri eigu, ætla sér að gera verulegar endurbætur á hótelinu. Fjallað er um málið í Jyllands Posten. Þar segir að eigendur d´Angleterre ætli sér að eyða nokkrum milljörðum kr. í þessar endurbætur. Hinsvegar verði fyrst að ganga frá starfslokasamningum við starfsfólk hótelsins áður en endurbæturnar fara í gang. Thomas Salicath sem á sæti í stjórn hótelsins hefur staðfest þessar áætlanir hinna nýju eigenda d´Angleterre . Hann segir að fyrst verði að ganga frá málum starfsfólksins en það telur yfir 100 manns. Með endurbótunum er ætlunin að fækka herbergjum og stækka þau sem fyrir eru. Þannig mun herbergjum hótelsins fækka úr 123 og niður í 85. „Með endurbótunum munum við bjóða upp á færri en stærri svítur á hótelinu,“ segir Salicath. Aðspurður um hvort endurbæturnar séu gerðar til að selja hótelið í framhaldinu segir Salicath svo ekki vera. Eigendurnir hafi fullan hug á að halda rekstrinum áfram eftir febrúar á næsta ári.
Mest lesið Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Susan Wojcicki er látin Viðskipti erlent Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Sprenging í sölu á sérsmíðuðum saunaklefum Samstarf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira