Bankastjórar rjúka upp í launum 6. mars 2011 12:05 Höskuldur Ólafsson.
Laun bankastjóra Arion hækkuðu um rúm fjörtíu prósent á síðasta ári. Þannig greindi Vísir frá því í gær að bankastjóri Arion banka, Höskuldur H. Ólafsson, fengi greiddar um 4,3 milljónir í laun á mánuði samkvæmt ársskýrslu bankans. Þá hafa laun yfirstjórnenda bankans hækkað um 37 prósent milli ára. Ársreikningur Arion banka fyrir árið 2010 var kynntur í síðustu viku. Þar kemur meðal annars fram að Höskuldur H. Ólafsson bankastjóri, sem tók við starfinu 1.júní 2010, fékk greiddar 30 milljónir króna á árinu í laun eða um 4,3 milljónir á mánuði.Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.Forveri hans Finnur Sveinbjörnsson fékk greiddar 15,9 milljónir fyrir 5 mánaða starf á árinu 2010 eða um 3 milljónir á mánuði. Laun bankastjóra hækkuðu því um fjörtíu og þrjú prósent við bankastjóraskiptin á síðasta ári. Árið 2009 var Finnur með 21 milljón króna í árslaun, eða 1750 þúsund krónur. Í skýrslunni kemur einnig fram að heildarlaunakostnaður aðalstjórnenda bankans var 109 milljónir króna árið 2010. Árið áður var sá kostnaður 80 milljónir króna. Þannig var launahækkun aðalstjórnenda 37% á milli ára. Til samanburðar þá hafa árslaun Birnu Einarsdóttur, bankastjóra Íslandsbanka, hækkað úr 24,1 milljónum króna árið 2009 upp í 31,6 milljónir árið 2010. Hún fer því úr rétt rúmum tveimur milljónum á mánuði upp í rétt rúmar tvær og hálfa milljón á mánuði. Landsbankinn hefur ekki skilað ársskýrslu fyrir árið 2010.
Tengdar fréttir Bankastjóri með tæpar fimm milljónir á mánuði Bankastjóri Arion banka, Höskuldur H. Ólafsson, fær greiddar um 4,3 milljónir í laun á mánuði og er því með ríflega helmingi hærri laun en forveri sinn, Finnur Sveinbjörnsson, sem var með tæpar tvær milljónir á mánuði árið 2009. 5. mars 2011 18:25 Mest lesið Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Viðskipti innlent Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Viðskipti innlent Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Viðskipti innlent Að nálgast starfsmann sem líður illa, er reiður eða leiður Atvinnulíf Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Viðskipti innlent Stærsti Hiab krani í heimi á sumarsýningu Veltis Samstarf Úr boltanum í tryggingarnar Viðskipti innlent Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Sjá meira
Bankastjóri með tæpar fimm milljónir á mánuði Bankastjóri Arion banka, Höskuldur H. Ólafsson, fær greiddar um 4,3 milljónir í laun á mánuði og er því með ríflega helmingi hærri laun en forveri sinn, Finnur Sveinbjörnsson, sem var með tæpar tvær milljónir á mánuði árið 2009. 5. mars 2011 18:25