Körfubolti

Hamar deildarmeistari kvenna í körfubolta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/ÓskarÓ
Haukar sáu til þess að Hamar varð í kvöld deildarmeistari í Iceland Express-deild kvenna með sigri á Keflvíkingum, 84-81. Hamar tapaði á sama tíma fyrir KR, 63-57.

Sigur Hauka kom nokkuð á óvart enda Keflvíkingar á mikilli siglingu eftir bikarmeistaratitilinn sem liðið vann um þarsíðustu helgi.

Keflavík hafði forystu í hálfleik, 47-40, en jafnræði var með liðunum lengst af í síðari hálfleik. Haukar tóku svo af skarið síðustu fimm mínúturnar og skoruðu þá tíu af síðustu fimmtán stigum leiksins.

Kathleen Snodgrass skoraði 28 stig fyrir Hauka og Ragna Margrét Brynjarsdóttir nítján auk þess sem hún tók ellefu fráköst.

Hjá Keflavík var Jackie Adamshick stigahæst með 27 stig og átta fráköst en Bryndís Guðmundsdótitr kom næst með 22 stig og níu fráköst. Aðrir náðu sér ekki á strik í liði Keflavíkur og munar um minna.

Leikur Hamars og KR var kaflaskiptur. KR hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og tíu stiga forystu að honum loknum, 42-32.

En KR-ingar skoruðu aðeins fjögur stig í þriðja leikhluta og tóku þá heimamenn frumkvæðið í leiknum. Taflið snerist þó KR-ingum í vil í fjórða leikhluta og fögnuðu þær að lokum sex stiga sigri, 63-57.

En sem fyrr segir höfðu úrslitin litla þýðingu vegna tap Keflvíkinga sem voru fyrir leiki kvöldsins eina liðið sem átti möguleika á að ná toppsætinu ef Hamar en ein umferð er eftir af deildakeppninni nú.

Margrét Kara Sturludóttir skoraði 20 stig fyrir KR og tók fimmtán fráköst. Chazny Morris kom næst með átján stig.

Hjá Hamri skoraði Jaleesa Butler átján stig auk þess sem hún tók átján fráköst. Íris Ásgeirsdóttir kom næst með tólf stig.

Hamar og Keflavík urðu í efstu tveimur sætum A-riðils og fara því beint í undanúrslit úrslitakeppninnar.

KR varð í þriðja sæti og Haukar í því fjórða og mæta efstu tveimur liðunum í B-riðli í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.

Í B-riðli eru Njarðvík og Snæfell að keppa um efstu tvö sætin en Njarðvík vann í kvöld sigur á Fjölni, 86-79, en Snæfell tapaði fyrir Grindavík á heimavelli, 67-72.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×