Innlent

Björgunaraðgerð Europol - Íslendingur í barnaklámhring

Hald var lagt á tölvubúnað en í honum fundust gögn um þátttöku mannsins í spjalli á Netinu þar sem umræðuefnið var barnaníð.
Hald var lagt á tölvubúnað en í honum fundust gögn um þátttöku mannsins í spjalli á Netinu þar sem umræðuefnið var barnaníð. Mynd úr safni
Íslenskur karlmaður um þrítugt kemur við sögu í alþjóðlegri lögreglurannsókn sem Europol greindi frá í dag.

Rannsóknin, sem gengur undir nafninu „Operation Rescue" og á íslensku má kalla Björgunaraðgerð, teygir sig til fjölmargra landa, sneri að samskiptum aðila á spjallrás á Netinu. Þar voru til umfjöllunar myndir sem á mátti sjá börn misnotuð kynferðislega. Um 230 börnum var bjargað í aðgerðinni.

Gefin hefur verið út ákæra á hendur manninum.

Spjallaði um barnaníð á Netinu

Kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu bárust gögn um málið síðasta sumar en í þeim var íslensk IP-tala rakin til manns á höfuðborgarsvæðinu. Í framhaldinu var Íslendingurinn handtekinn og yfirheyrður og hjá honum gerð húsleit.

Hald var lagt á tölvubúnað en í honum fundust gögn um þátttöku mannsins í spjalli á Netinu þar sem umræðuefnið var barnaníð.

Íslendingurinn, sem notaðist ávallt við sama gælunafn þegar hann tók þátt í spjalli af þessu tagi, viðurkenndi aðild sína að málinu.

Áður dæmdur fyrir vörslu barnakláms

Maðurinn, sem hefur áður komið við sögu hjá lögreglu hérlendis og fékk átta mánaða fangelsisdóm árið 2006 fyrir vörslu á myndefni sem sýndi börn misnotuð kynferðislega, neitaði því hinsvegar að hafa undir höndum efni sem sýndi kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.

Ekki var það sannleikanum samkvæmt því í tölvugögnum hans fundust fimm hreyfimyndir sem öll sýndu kynferðislegt ofbeldi gagnvart börnum.

Rannsókn kynferðisbrotadeildar LRH á áðurnefndum hluta „Operation Rescue" er lokið. Málið var sent embætti ríkissaksóknara til meðferðar en gefin hefur verið út ákæra á hendur manninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×