Fótbolti

Ég er í besta liði heims segir Javier Hernandez

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Javier Hernandez var í sviðsljósinu í gær þegar hann skoraði bæði mörk Manchester United í 2-1 sigri liðsins gegn Marseille.
Javier Hernandez var í sviðsljósinu í gær þegar hann skoraði bæði mörk Manchester United í 2-1 sigri liðsins gegn Marseille. Nordic Photos / Getty Images
Javier Hernandez var í sviðsljósinu í gær þegar hann skoraði bæði mörk Manchester United í 2-1 sigri liðsins gegn Marseille í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Landsliðsframherjinn frá Mexíkó sem gengur undir nafninu „litla baunin" eða Chicharito í heimalandinu segir að Man Utd þurfi ekki að óttast Barcelona eða önnur lið þegar dregið verður í 8-liða úrslitin á föstudag.

„Ég hef alltaf sagt að ég er í besta liði í heimi," sagði Chicharito í gær en hann hefur skorað 16 mörk á þessari leiktíð.

„Ég átti ekki von á því að fá að spila svona mikið á mínu fyrsta tímabili. Ég verð að þakka liðsfélögum mínum, þjálfarateyminu og Guði að hlutirnir ganga svona vel hjá mér," bætti hann við.


Tengdar fréttir

Inter sló út Bayern eftir ótrúlega endurkomu

Inter Milan komst áfram í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir ótrúlegan 3-2 sigur á Bayern München á Allianz Arena í München í kvöld. Bayern fékk fjölda færa til þess að gulltryggja sigur sinn á Evrópumeisturum en Inter-menn gáfust ekki upp og tryggðu sér 3-2 sigur með því að skora tvisvar í seinni hálfleiknum.

Ferguson: Nani verður með Manchester United á morgun

Nani og Michael Carrick verða báðir í hópnum hjá Manchester United fyrir leikinn á móti Marseille í Meistaradeildinni á morgun og kemur það mörgum mikið á óvart að Nani sé búinn að ná sér eftir að hafa fengið stóran skurð á fótinn eftir ljóta tæklingu frá Liverpool-manninum Jamie Carragher.

Nemanja Vidic verður líklega ekki með gegn Marseille

Nemanja Vidic verður að öllum líkindum ekki með Manchester United í kvöld þegar liðið tekur á móti franska liðinu Marseille í síðari leiknum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Deilur og lögreglumál í aðalhlutverki hjá Marseille

Franska liðið Marseille mætir Manchester United í kvöld í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hafa leikmenn franska liðsins þurft að hugsa um ýmislegt annað en fótbolta í aðdraganda leiksins.

Rooney: Ég er að fá boltann mun meira

Wayne Rooney og félagar í Manchester United komust í kvöld í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar fimmta árið í röð eftir 2-1 sigur á Marseille á Old Trafford. Það var mikil spenna í leiknum allan tímann og sætið var aldrei tryggt fyrr en lokaflautið gall.

Verður Nani með Man Utd gegn Marseille?

Portúgalski landsliðsmaðurinn Nani er byrjaður að æfa með Manchester United og eru einhverjar líkur á því að hann verði klár í slaginn í Meistaradeild Evrópu gegn Marseille sem fram fer á morgun. Fyrri leiknum lauk með markalaus jafntefli í Frakklandi en enska liðið hefur aldrei tapað gegn frönsku liði á heimavelli sínum, Old Trafford.

Ferguson: Þetta var taugatrekkjandi í kvöld

Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, gat aldrei sitið rólegur í seinni leik Manchester United og Marseille í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á Old Trafford í kvöld. Franska liðið þurfti bara að skora eitt mark stærsta hluta leiksins og var að skapa sér nokkur góð færi. Það var Javier Hernández sem tryggði United sætið í átta liða úrslitunum með tveimur mörkum.

Litli Mexíkaninn skaut Manchester United áfram í átta liða úrslitin

Manchester United er komið í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar fimmta árið í röð eftir 2-1 sigur á frönsku meisturunum í Marseille. Það var litli Mexíkaninn Javier Hernández sem skoraði bæði mörk United í leiknum en hann hefur nú skorað sextán mörk á sinni fyrstu leiktíð á Old Trafford.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×