Innlent

Ríkissaksóknari ætlar ekki að áfrýja níumenningadómnum

Frá mótmælum fyrir framan Héraðsdóm vegna dómsmálsins.
Frá mótmælum fyrir framan Héraðsdóm vegna dómsmálsins.
Ríkissaksóknari mun ekki áfrýja niðurstöðu héraðsdóms í máli níumenninganna.

Lára V. Júlíusdóttir, settur saksóknari í málinu, tilkynnti dómara og verjendum í málinu þetta fyrir helgi.

Fjórir níumenninganna voru dæmdir í héraðsdómi, ýmist til að greiða sektir eða sæta skilorðsbundnu fangelsi vegna óláta og átaka við Alþingi í desember 2008.

Öll níu voru sýknuð af ákæru saksóknarans um árás á Alþingi.

Hin dæmdu geta áfrýjað dómnum til Hæstaréttar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum en frestur til þess rennur út í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×