Fótbolti

Napoli í þriðja sætið eftir sigur á Parma

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Ezequiel Lavezzi í baráttunni við varnarmann Parma.
Ezequiel Lavezzi í baráttunni við varnarmann Parma. Nordic Photos/Getty Images
Napoli er enn með í baráttunni um ítalska meistaratitilinn eftir 1-3 útisigur á Parma í ítölsku deildinni í kvöld.

Parma náði forystunni á 29. mínútu með marki Raffaele Palladino en Marek Hamsik og Ezequiel Iván Lavezzi komu Napoli yfir snemma í seinni hálfleik. Christian Maggio tryggði Napoli sigurinn með marki undir lok leiksins.

Eftir leikinn er Napoli með 56. stig í þriðja sæti deildarinnar og eru sex stigum á eftir AC Milan sem er á toppnum. Inter Milan er í öðru sæti með 57 stig.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×