Innlent

Ætlaði að jafna um öryggisvörð en datt á hausinn

Ölvaður karlmaður, sem ætlaði að berja öryggisvörð í 10-11 verslunininni við Engihjalla um klukkan tvö í nótt, hrasaði í miðri atlögunni og féll á andlitið svo það fór að fossblæða úr nefi hans. Kallað var á sjúkrabíl og hann fluttur á Slysadeild, þar sem blóðstreymið var stöðvað.

Öryggisvörðurinn hafði vísað manninum á dyr vegna ölvunar, en hann vildi ekki sætta sig við það og ætlaði að jafna um öryggisvörðinn, þegar hann hrasaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×