Innlent

Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK

Þessar stúlkur fóru í Sumarbúðir í Ölver síðasta sumar.
Þessar stúlkur fóru í Sumarbúðir í Ölver síðasta sumar.
Skráning í sumarbúðir KFUM og KFUK, Vatnaskóg, Vindáshlíð, Ölver, Kaldársel og Hólavatn hefst á vorhátíð félagsins á Holtavegi 28 í dag kl. 12:00. Í sumar verður 51 dvalarflokkur í boði fyrir ólíka aldurshópa.

Vel á þriðja þúsund börn dvöldust í sumarbúðunum á síðastliðnu ári en reynsla undanfarinna ára sýnir að vinsælustu dvalarflokkarnir fyllast á fyrsta skráningardegi. Fjölbreytt fjölskyldudagskrá verður á Vorhátíðinni á meðan skráningu stendur, en jafnframt hefur netskráningarkerfi félagsins, á www.kfum.is , verið bætt milli ára til að anna auknu álagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×