Innlent

Rétt slapp

Ökumaðurinn sem lögreglan á Selfossi stöðvaði í gærkvöldi slapp heldur betur með skrekkinn, ef svo má að orði komast.

Hann var látinn blása í áfengismæli og niðurstöður úr honum sýndu að það munaði aðeins nokkrum kommum á að hann væri yfir mörkum. Honum var gert að hætta akstri og sleppur því við sekt eða sviptingu ökuleyfis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×