Innlent

Björn Bjarnason: Jóhanna mesti gervibaráttumaður sem ég hef kynnst

Björn Bjarnason.
Björn Bjarnason.
„Í mínum huga er ótrúlegt að sjálf Jóhanna Sigurðardóttir skuli standa frammi fyrir úrskurði Kærunefndar jafnréttismála um að hún hafi brotið jafnréttislög við embættisveitingu í forsætisráðuneytinu. Þetta og viðbrögð hennar við úrskurðinum sanna mér endanlega að Jóhanna er mesti gervibaráttumaður í stjórnmálum sem ég hef kynnst," skrifar Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins um úrskurð kærunefndar jafnréttismála gegn Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á heimasíðu sína.

Björn gagnrýnir einnig aðstoðarmann Jóhönnu harkalega fyrir að leggja að jöfnu mál Jóhönnu og mál Björns þegar hann gekk gegn áliti kærunefndarinnar jafnréttismála og skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson sem hæstaréttadómara en ekki Hjördísi Hákonardóttir.

Þannig skrifar Björn á bloggið sitt: „Að Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu, telji sér fært að afsaka Jóhönnu með því að vísa til álits sem Kærunefnd jafnréttismála gaf þegar ég skipaði Ólaf Börk Þorvaldsson í hæstarétt sýnir best hve veruleikafirring er mögnuð í kringum Jóhönnu. Tal Hrannars og Jóhönnu um mannauðsfræðinginn sem þau skýla sér á bakvið í forherðingu sinni, er ekkert annað en venjulegur samfylkingarspuni. Jóhanna situr uppi með úrskurð. Þegar ég átti í hlut var gefið álit. Ég fór að því og samdi við Hjördísi Björk Hákonardóttur."

Birni þykir einsýnt hvað þingflokkur Samfylkingarinnar þarf að gera:

„Óhjákvæmilegt er fyrir þingflokk Samfylkingarinnar að taka nú af skarið og ýta Jóhönnu og Hrannari B. til hliðar. Hún er ekki hæf til að gegna embætti forsætisráðherra. Liðið sem hún safnar að sér endurspeglar vanmátt hennar. Hún og Jón Gnarr etja kappi saman um að misheppnast gjörsamlega að sinna forystu í þágu almennra borgara landsins. Samfylkingin tryggir Jóni Gnarr einnig valdasess sinn," skrifar Björn á heimasíðu sína.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×