Handbolti

Dýrmætur sigur KR án Köru - myndir

KR jafnaði í gær metin í undanúrslitarimmu liðsins gegn Keflavík í úrslitakeppni Iceland Express-deild kvenna. KR vann þá ellefu stiga sigur, 75-64.

KR var án Margrétar Köru Sturludóttur sem tók út sitt síðara leikbann í gær og Chazny Morris sem er með rifinn liðþófa í hné. KR tefldi þó fram nýjum Kana í leiknum, Melissu Jeltema, sem átti góðan leik.

Staðan í einvíginu er 1-1 en þrjá sigra þarf til að komast í úrslitin. Liðin mætast næst í Keflavík á föstudagskvöldið.

Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var í DHL-höllinni í gær og tók þessar myndir.

Mynd/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×