Körfubolti

Fanney: Njarðvík er með hörku lið

Kristinn Páll Teitsson skrifar
"Þetta var engan veginn það sem við lögðum upp með, við förum í alla leiki til að vinna þá og það gekk ekki í dag enda spiluðum við illa," sagði Fanney Lind Guðmundsdóttir, leikmaður Hamars eftir 86-78 tap gegn Njarðvík.

"Við vissum að við þyrftum að spila góðan leik til að vinna þær, Njarðvík er með hörku lið með þrjá mjög góða útlendinga,"

"Þær hafa núna verið í úrslitakeppni átta ár í röð og það er alltaf erfitt að koma hingað og vinna. Núna einbeitum við okkur að næsta leik á fimmtudaginn og horfum bara á hann, að komast í úrslitin er markmiðið okkar," sagði Fanney Lind




Fleiri fréttir

Sjá meira


×