Botox-kona vann sem nektardansmær 21. mars 2011 10:13 Lýtaaðgerð. Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.. „
Það eru fimm sex ár síðan hún vann hjá mér," segir Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfingers, en kona sem er sögð stunda fegrunaraðgerðir í íbúð sinni í Hjallahverfinu í Kópavogi, vann sem nektardansmær á Goldfinger. Það var DV sem greindi frá því í dag að erlend kona búsett á Íslandi, byði upp á bótox-meðferðir á heimili sínu í Kópavogi. Hún flytur efnið inn frá Úkraínu, samkvæmt DV, þar sem hún fær það frá þarlendum lækni, en strangar reglur gilda hér á landi um innflutning lyfja. Konan er um fertugt. Vísir hafði samband við eiginmann konunnar, sem er íslenskur. Hann vildi ekki tjá sig um málið og bar við tímaskorti. „Þetta hefur ekki komið inn á okkar borð," sagði Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu um starfsemi konunnar. Hún er ekki til sérstakrar rannsóknar þar á bæ. Efnið sem konan notar heitir Dysport samkvæmt DV. Í því er sama virka efnið og er í bótoxi, og gilda sömu reglur um bæði lyfin. Samkvæmt sérlyfjaskrá mega einungis læknar, sem búa yfir viðeigandi hæfni og hafa sérfræðiþekkingu á meðferðinni gefa lyfið og er ávísun lyfsins bundin við sérfræðinga í augn-, taugasjúkdóma-, taugaskurð-, lýta- og húðsjúkdómalækningum. Ekki náðist í formann Félags íslenskra lýtalækna, né landlækni vegna málsins. Í DV er haft eftir landlæknaembættinu að ekki sé unnt að aðhafast í málinu þar sem efnin, sem konan fær, eru frá erlendum aðila en ekki íslenskum.
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Innlent Gerðu loftárás á skóla í nótt Erlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Erlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Fleiri fréttir Sleginn í rot í hópslagsmálum í miðbænum Myndi fara stystu leið upp í sveit Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Rússar lýsa yfir neyðarástandi og nýtt rafskútufyrirtæki Brutu rúður í strætóskýlum í Mjódd Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Sjá meira