Innlent

Betur fór en á horfði á Hvolsvelli

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl á spítala eftir að hafa lent í árekstri rétt austan við Hvolsvöll í dag. Þá lentu jepplingur og fólksbíll í árekstri en alls voru þrír í bílunum.

Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli virtist slysið alvarlegra við fyrstu sýn. Meðal annars var þyrla landhelgisgæslunnar kölluð út en aðstoð hennar var svo afþökkuð.

Tildrög slyssins eru óljós en málið er í rannsókn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×