Orkuveitan gat fengið milljarðalán hjá Landsbankanum 31. mars 2011 12:01 Bjarni Bjarnason er forstjóri Orkuveitunnar.
Orkuveitan átti aðgang að átta milljarða lánalínu hjá Landsbanka Íslands á sama tíma og forstjóri fyrirtækisins sagði fyrirtækið gjaldþrota. Lán frá Landsbankanum hefði verið á verri kjörum en milljarðalán borgarinnar til fyrirtækisins, segir upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar. Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, sagði á blaðamannafundi í fyrradag að staða fyrirtækisins væri svo slæm að útlit væri fyrir að ekki yrði hægt að greiða laun til starfsmanna í sumar. Orkuveitan væri tæknilega gjaldþrota. Reykjavíkurborg lánaði Orkuveitunni 12 milljarða króna með aðgerðum til bjargar Orkuveitunni, sem komu á móti umfangsmiklum niðurskurðarðagerðum hjá Orkuveitunni. Alfreð Þorsteinsson fyrrverandi stjórnarformaður Orkuveitunnar upplýsti í fréttum okkar í gærkvöldi, að Orkuveitan hefði aðgang að átta milljörðum króna í lánalínu hjá Landsbankanum, sem ekki hefði verið nýttur. Eiríkur Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi Orkuveitunnar, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu í morgun. Hann sagði lánalínuna hjá Landsbankanum þjóna þeim tilgangi að mæta hugsanlegum sveiflum í gengi. Í áætlun Orkuveitunnar væru margir óvissuþættir og því mikilvægt að hafa aðgang að varasjóði. Eiríkur segir kjörin á láninu frá borginni mun betri en þau sem bankar bjóða og því hefði lánalínan hjá Landsbankanum ekki verið nýtt. Ekki væri hægt að miða rekstur við það að vera með yfirdráttinn í botni. Stefán Svavarsson, sem meðal annars var endurskoðandi Landsvirkjunnar til margra ára, varpar þeirri spurningu upp í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag hvort satt og rétt hafi verið skýrt frá stöðu Orkuveitunnar. Hann greinir ársreikning fyrirtækisins sem birtur var nú í vikunni og segir hann sýna betri stöðu en stjórnendur fyrirtækisins hafi haldið fram. Hann spyr því hvaða hvatir liggi að baki yfirlýsingum stjórnenda um gjaldþrot Orkuveitunnar.
Mest lesið Evrópska rafhlaupahjólaleigan Bolt opnar á Íslandi í dag Viðskipti innlent Stofnendur Bónus og Krónunnar á bak við nýja lágvöruverðsverslun Viðskipti innlent Kominn tími til að Hopp og Zolo fái samkeppni Viðskipti innlent Ný tækifæri: Til dæmis skór úr endurunnu sjávarplasti Atvinnulíf Stórt skref stigið í yfirtöku JBT á Marel Viðskipti innlent Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Viðskipti innlent Klara nýr forstöðumaður hjá RSV Viðskipti innlent Allt að 43 prósent lægra matvöruverð án tolla Viðskipti innlent Orðrómur um Appelsín ósannur Neytendur Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán Neytendur Fleiri fréttir Stofnendur Bónus og Krónunnar á bak við nýja lágvöruverðsverslun Kominn tími til að Hopp og Zolo fái samkeppni Evrópska rafhlaupahjólaleigan Bolt opnar á Íslandi í dag Stórt skref stigið í yfirtöku JBT á Marel Klara nýr forstöðumaður hjá RSV „Komin í hóp fullorðnu félaganna“ Play mætt á aðalmarkað Kauphallar Meiri harka í framkvæmdum en áður og fleiri mál fyrir dóm Stefnir í helmingshækkun fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði Allt að 43 prósent lægra matvöruverð án tolla Ein og hálf milljón í sekt vegna leyfislausrar Airbnb útleigu Gjaldþrotið nam 780 milljónum króna Stefna að því að opna Starbucks á fyrri hluta næsta árs Frá Bjarna Benediktssyni til Bestseller Play í Kauphöllina Skemmtistaðurinn 22 opnaður á nýjan leik Starbucks kemur til Íslands Starbucks opnar á Íslandi Á von á nokkrum tilboðum í næstu viku Ný þjónustumiðstöð opnuð við Landeyjahafnarafleggjarann Þóra frá VIRK til Visku Þórður Snær segir skilið við Heimildina Skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Hótelgistinóttum fækkar á landsvísu Friðbjörn tekur við Unimaze Nýjustu vísbendingar bendi til komandi kólnunar Aðstoðarforstjóri Play hættur Terra Einingar kaupir Öryggisgirðingar Hagnaður Arion banka dregst saman milli ára Play tapaði milljarði en staðan „mjög traust“ að mati forstjórans Sjá meira