Viðskipti innlent

Skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Tómas Brynjólfsson.
Tómas Brynjólfsson. stjórnarráðið

Forsætisráðherra hefur á grundvelli niðurstöðu ráðgefandi hæfnisnefndar skipað Tómas Brynjólfsson í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika til fimm ára.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. 

Embættið var auglýst laust til umsóknar 9. apríl sl. og bárust sjö umsóknir. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka. Fjórir umsækjendur, þau Eggert Þröstur Þórarinsson, Guðrún Johnsen, Haukur C. Benediktsson og Tómas Brynjólfsson töldust vel hæf til að gegna embættinu.

„Var það niðurstaða fjármála- og efnahagsráðherra að Tómas Brynjólfsson væri hæfastur umsækjenda og tilnefndi hann til skipunar í embættið.“

Í tilkynningu er farið yfir náms- og starfsferil Tómasar:

„Tómas Brynjólfsson lauk meistaragráðu í alþjóðastjórnmálum frá London School of Economics árið 2004 og meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hann BA-gráðu í alþjóðastjórnmálafræði, sögu og hagfræði við University of Georgia árið 2002.

Tómas hefur gegnt embætti skrifstofustjóra á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu frá árinu 2018 og var settur ráðuneytisstjóri frá janúar til apríl 2024. Á árunum 2015-2018 var hann framkvæmdastjóri á skrifstofu þjónustuviðskipta hjá EFTA-skrifstofunni í Brussel. Þá var hann skrifstofustjóri á skrifstofu efnahagsmála og fjármálamarkaða í fjármála- og efnahagsráðuneytinu á árunum 2013-2015 en starfaði áður sem sérfræðingur í efnahagsmálum í forsætisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti. Á árunum 2006-2008 starfaði hann í greiningardeild Landsbankans.

Tómas hefur víðtæka þekkingu og reynslu á sviðum fjármálamarkaða, fjármálastöðugleika og efnahagsmála og hefur m.a. tekið þátt í mótun umgjarðar um fjármálstöðugleika og regluverk á fjármálamarkaði. Þá býr hann yfir yfirgripsmikilli þekkingu á stjórnsýslu og regluverki fjármálmarkaða og þjóðhagsvarúðar.

Tómas var varaformaður stjórnar Fjármálaeftirlitsins á árinu 2015 og stjórnarformaður hjá Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda á árunum 2021-2023. Hann hefur setið í fjölda nefnda og vinnuhópa á vegum stjórnvalda tengdum fjármálamörkuðum, efnahagsmálum og þjóðhagsvarúð auk þess að leiða alþjóðlegt samstarf stjórnvalda á sviði efnahagsmála, m.a. gagnvart Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Efnahags- og framfarastofnuninni.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×