Körfubolti

Keflavíkurkonur einum sigri frá titlinum - myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kvennalið Keflavíkur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli á föstudagskvöldið eftir að liðið komst í gær í 2-0 í úrslitaeinvíginu á móti Njarðvík í Iceland Express deild kvenna.

Keflavík vann þá 67-64 sigur í Ljónagryfjunni í gærkvöldi en hafði áður unnið fyrsta leikinn 74-73 í Keflavík á laugardaginn.

Keflavíkurliðið vann bikarinn fyrr á tímabilinu og getur því unnið tvöfalt í vetur landi stelpurnar þessum eina sigri sem vantar nú upp á. Njarðvík komst öllum að óvörum í lokaúrslitin í fyrsta sinn í sögu félagsins en hefur þurft að sætta sig við tvö naum töp í fyrstu tveimur leikjunum.

Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leiknum í Njarðvík í gærkvöldi og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.

Mynd/Anton



Fleiri fréttir

Sjá meira


×