Formúla 1

Vettel fremstur á ráslínu í Sjanghæ

Lewis Hamilton, Sebastian Vettel og Jenson Button börðust um besta tíma við keppnauta sína í tímatökum í Sjanghæ í morgun.
Lewis Hamilton, Sebastian Vettel og Jenson Button börðust um besta tíma við keppnauta sína í tímatökum í Sjanghæ í morgun. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í tímatökum á Sjanghæ brautinni í Kína í dag. Hann varð 0.715 sekúndum á undan Jenson Button á McLaren, en Lewis Hamilton á McLaren varð þriðji.

Vettel náði besta tími í fyrri tilraun af tveimur í lokaumferðinni, en margir keppinautar hans gerðu bara eina tilraun. Engum tókst að skáka afburðartíma Vettels, sem hefur verið fremstur á ráslínu í báðum mótum ársins og hefur unnið þau bæði.

Nico Rosberg á Mercedes varð fjórði, en liðsfélagi hans Michael Schumacher náði eins fjórtanda sæti á ráslínu, eftir akstursmistök í kröppustu beygju brautarinnar. Mark Webber hjá Red Bull verður aðeins átjándi.

Bein útsending frá Formúlu 1 mótinu í Sjanghæ verður á Stöð 2 Sport kl. 6.30 á sunnudagsmorgun.

Sjá brautarlýsingu og tölfræði

Tímarnir í nótt

1. Sebastian Vettel Red Bull-Renault 1m33.706s

2. Jenson Button McLaren-Mercedes 1m34.421s + 0.715

3. Lewis Hamilton McLaren-Mercedes 1m34.463s + 0.757

4. Nico Rosberg Mercedes 1m34.670s + 0.964

5. Fernando Alonso Ferrari 1m35.119s + 1.413

6. Felipe Massa Ferrari 1m35.145s + 1.439

7. Jaime Alguersuari Toro Rosso-Ferrari 1m36.158s + 2.452

8. Paul di Resta Force India-Mercedes 1m36.190s + 2.484

9. Sebastien Buemi Toro Rosso-Ferrari 1m36.203s + 2.497

10. Vitaly Petrov Renault No time

11. Adrian Sutil Force India-Mercedes 1m35.874s + 1.388

12. Sergio Perez Sauber-Ferrari 1m36.053s + 1.567

13. Kamui Kobayashi Sauber-Ferrari 1m36.236s + 1.750

14. Michael Schumacher Mercedes 1m36.457s + 1.971

15. Rubens Barrichello Williams-Cosworth 1m36.465s + 1.979

16. Nick Heidfeld Renault 1m36.611s + 2.125

17. Pastor Maldonado Williams-Cosworth 1m36.956s + 2.470

18. Mark Webber Red Bull-Renault 1m36.468s + 1.196

19. Heikki Kovalainen Lotus-Renault 1m37.894s + 2.622

20. Jarno Trulli Lotus-Renault 1m38.318s + 3.046

21. Jerome D'Ambrosio Virgin-Cosworth 1m39.119s + 3.847

22. Timo Glock Virgin-Cosworth 1m39.708s + 4.436

23. Tonio Liuzzi HRT-Cosworth 1m40.212s + 4.940




Fleiri fréttir

Sjá meira


×