Fótbolti

Ferguson reyndi að fá Raul til Man. Utd

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Raul.
Raul.
Cristoph Metzelder, félagi Spánverjans Raul hjá Schalke, segir að Man. Utd hafi reynt að fá Raul til sín frá Real Madrid síðasta sumar.

"Raul sagði mér frá þessu. Ég veit ekki hvort hann velti fyrir sér að fara þangað," sagði Metzelder sem lék einnig með Raul hjá Madrid.

"Leikmaður eins og hann veður í tilboðum. Hann fékk tilboð bæði frá Englandi og Bandaríkjunum. Ég gerði mitt besta til þess að fá hann til Schalke."

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, sagði eitt sinn að Raul væri besti leikmaður heims og þarf því ekki að koma á óvart að hann hafi reynt að lokka framherjann til United.

Raul hefur átt góðu gengi að fagna hjá Schalke sem er komið í undanúrslit Meistaradeildarinnar þar sem liðið mætir einmitt Man. Utd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×