Erlent

Forsetinn fyrrverandi fékk hjartaáfall

Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands.
Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands. Mynd/AP
Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands, fékk hjartaáfall í dag og var fluttur á sjúkrahús í strandbænum Sharm el-Sheikh.

Hann er 82 ára gamall og hefur dvalið í einbýlishúsi sínu í bænum Sharm el-Sheikh frá því hann hrökklaðist frá völdum í febrúar síðastliðnum. Hann, ásamt fjölskyldu sinni, hefur verið settur í farbann frá landinu og þá hafa allar eignir hans og fjölskyldu hans verið frystar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×