Erlent

Mubarak fluttur á sjúkrahús

Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands.
Hosni Mubarak, fyrrverandi forseti Egyptalands. Mynd/AFP
Hosni Mubarak, fyrrum forseti Egyptalands, var fluttur á sjúkrahús í bænum Sharm el-Sheikh seinni partinn í dag. Ástand hans er sagt vera alvarlegt en aðstoðarmenn hans hafa borið þær fréttir til baka. Von er á yfirlýsingu síðar í dag.

Mubarak er 82 ára gamall og hefur dvalið í einbýlishúsi sínu við strandbæinn Sharm el-Sheikh frá því hann hrökklaðist frá völdum í febrúarsíðastliðinn.Forsetinn fyrrverandi og fjölskylda hans hefur verið sett í farbann frá landinu og þá hafa eignir hans verið frystar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×