Innlent

Brotnar bílrúður í Borgarfirðinum

Óveður raskaði ferðum fjölda fólks síðdegis og í gærkvöldi. Nokkur hópur fólks þurfti að bíða af sér óveðrið á Hótel Brú en ökumenn lentu í grjótfoki á Borgarfjarðarbrúnni svo nokkrar rúður fóru í mask eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi. Fleiri hundruð manns gistu til dæmis í Hrútafirðinum í nótt, eftir að norðurleiðin lokaðist vegna ofsaveðurs.



Auk þessa sló álagið á Neyðarlínuna líka öll fyrri met í gærkvöldi.- Áratuga gömul tré brotnuðu eða rifnuðu upp með rótum, Svalahurðir fuku upp og brotnuðu, þakplötur losnuðu og fuku, rúður brotnuðu, lausir hlutir fuku til, svo það helsta sé nefnt, en þrátt fyrir met fjölda útkalla, varð óvíða stórtjón.

Þó varð mikið tjón þegar fjárhús fauk nánast í heilu lagi í Borgarfirði og kindurnar stóðu á gólfinu og horfðu upp í himininn þegar björgunarmenn bar að. Þá rifnaði um sjötíu fermetra stórt gat á vegg viðhaldsskýlis Icelandair á Keflavíkurflugvelli og rúður brotnuðu í mörgum bílum, bæði vegna þrýstings og grjótfoks. Óveðrið skall á Akureyri um miðnætti og þar varð eitthvað fok, en ekki alvarlegt.

Lögreglumönnum þykir með ólíkindum að engin skuli hafa meiðst í öllum látunum, og þá sérstaklega að engan björgunarsveitarmann skuli hafa sakað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×