Erlent

Einstakur viðburður í sögunni: Páfinn svarar spurningum í sjónvarpinu

Benedikt páfi XVI
Benedikt páfi XVI Mynd AFP
Benedikt páfi XVI hefur verið skráður á spjöld sögunnar sem fyrsti páfinn til að koma fram í sjónvarpsþætti og svara aðsendum spurningum almennings.

Þátturinn var sýndur á ítölsku sjónvarpsstöðinni Rai TV síðdegis í dag, á föstudaginn langa.

Þúsundir sendu inn spurningar og voru sjö valdar úr. Þátturinn var ekki í beinni útsendingu heldur voru svörin tekin upp fyrir viku og svaraði páfinn spurningunum úr bókasafni sínu í Vatíkaninu.

Athygli vakti að engar spurningar komust í gegn sem tengdust kynferðislegu ofbeldi sem kaþólskir prestar hafa beitt sóknarbörn sín.

Fyrsta spurningin sem páfinn svaraði kom frá sjö ára japanskri stúlku sem hafði orðið fyrir miklu áfalli í kjölfar jarðskjálftans mikla og flóðbylgjunnar í Japan. Hún spurði páfann af hverju hún og önnur börn þyrftu að vera svona hrædd. Páfinn sagðist sjálfur hafa spurt sig nákvæmlega þessarar spurningar.

„Við höfum ekki svörin en við vitum að Jesús þurfti að þjást rétt eins og þú," sagði hann við litlu stúlkuna.

Önnur spurningin var frá ítalskri móður drengs sem hefur verið í dái um langan tíma. Móðirin spurði hvort sonur hennar hefði enn sál, og sagði páfinn að sálin hefði hana sannarlega enn.

„Ástandi hans má kannski helst líkja við ástand gítars með slitna strengi, og því gefur hann ekki lengur frá sér tóna," sagði hann. Sál drengsins gæti ekki lengur spilað, ef svo mætti að orði komast, en hún væri enn á sínum stað.

Sjónvarpskonan Rosario Carello átti frumkvæði að því að fá páfann í þáttinn, og segir hún að páfinn hafi einfaldlega svarað spurningu hennar játandi þegar hún bað hann að koma í þáttinn.

Hingað til hefur Benedikt fáfi XVI ekki veitt fjölmiðlamönnum viðtöl nema í flugvélum á ferðalögum hans erlendis, að því er BBC greinir frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×