Íslenski boltinn

Rúnar: Ásættanlegt stig

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta er ásættanlegt stig sem við erum að fá hér í kvöld,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir leikinn í gær.

„Ég verð að vera sáttur eftir nokkuð dapran leik að okkar hálfu, en það voru erfiðar aðstæður  á vellinum í kvöld. Við spiluðum fyrri hálfleikinn mjög illa og sýndum alls ekki okkar besta leik".



„Eftir að Keflvíkingar komust yfir þá fórum  mínir leikmenn að taka fleiri áhættur og spiluðu boltanum betur á milli sín. Við tókum aðeins yfir leikinn í restina og það skilaði okkur þessu jöfnunarmarki,“ sagði Rúnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×