Íslenski boltinn

Willum: Sorgleg frammistaða hjá Gunnari

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég er bara virkilega stoltur af mínu liði og mér fannst strákarnir berjast eins og ljón allan leikinn,“sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflvíkinga, eftir leikinn í kvöld.

„Það er virkilega sárt að horfa upp á dómarann gera í brækurnar í leiknum og jafnframt dýrt fyrir okkur. Gunnar Jarl  (dómari leiksins) ofmetnaðist í fyrra og mér finnst hann í raun verri í ár og frammistaðan hans í kvöld var sorgleg".

„Við lögðum upp með ákveðna hluti í þessum leik og það skilaði okkur marki fljótlega í síðari hálfleiknum. Liðið reyndi að spila fótbolta allan tímann og það er ég virkilega ánægður með,“ sagði Willum eftir leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×