Ný kynslóð af gulum leigubílum í New York 4. maí 2011 07:53
Ný kynslóð hinna þekktu gulu leigubíla í New York borg kemur á götur borgarinnar árið 2013. Þeir verða framleiddir hjá Nissan bílaverksmiðjunum í Japan. Michael Bloomberg borgarstjóri New York greindi frá þessu í gærdag. Hinir nýju leigubílar munu byggja á hönnun NV200 sendiferðabílsins frá Nissan. Um er að ræða samning til 10 ára og er hann talin um eins milljarðs dollara, eða 111 milljarða króna virði. Nissan keppti við Ford og tyrkneska bílaframleiðendann Karsan Otomotiv um þennan samning. Nissan hlaut samninginn þar sem framleiðandinn bauð fram bíl sem var sparneytnastur á eldsneyti af þeim þremur sem í boði voru. Raunar notar Nissan bíllinn helmingi minna bensín en sá sem Ford bauð fram. Hinir nýju leigubílar frá Nissan verða útbúnir með gervihnattaleiðsögn þannig að engin hætta er á að leigubílstjórarnir villist þegar þeir þurfa að aka farþegum sínum í úthverfi borgarinnar. Um 13.000 gulir leigubílar aka um götur New York með um 600.000 farþega á ári hverju.
Mest lesið Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Neytendur Lágvöruverðsverslunin Prís opnar í dag Neytendur Reiknar með því að Bónus sjái Prís sem áskorun Neytendur Ritúalið verður að Skjóli Viðskipti innlent Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp Viðskipti innlent Temu kaupin getu hæglega orðið að fíkn Neytendur Verðstríð að hefjast á matvörumarkaði Neytendur Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Viðskipti innlent Litlu fyrirtækin: Upplifa sjálfbærni sem aukavinnu og vesen Atvinnulíf Google leiðin: Fjögur atvinnuviðtöl yfirdrifið nóg Atvinnulíf Fleiri fréttir Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt Sjá meira