Viðskipti erlent

Sækja fast að Evrópumaður taki við af Strauss-Kahn

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ræddi við blaðamenn í dag og sagði eðlilegt að Evrópumaður taki við sem forstjóri AGS.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, ræddi við blaðamenn í dag og sagði eðlilegt að Evrópumaður taki við sem forstjóri AGS. Mynd/AP
Evrópuríkin sækja það mjög fast að Evrópumaður taki við af Dominique Strauss-Kahn sem forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Um það er þó engin sátt í öðrum heimshlutum sem finnst komið að sér.

Evrópa hefur átt framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins frá því hann var stofnaður eftir síðari heimsstyrjöldina. Og nú þarf að finna nýjan stjóra eftir að Dominique Strauss-Kahn sagði starfinu lausu vegna kynferðisbrotamáls í Bandaríkjunum. Löndum í Asíu, Suður-Ameríku og Afríku þykir sem Evrópa hafi átt framkvæmdastjórann nógu lengi. Á það var minnst á blaðamannafundi í kínverska utanríkisráðuneytinu í dag og sama hefur heyrst frá Brasilíu og Suður Afríku. Angela Merkel kanslari Þýskalands var þó ekkert feimin við að halda Evrópukröfunni til streitu í dag.

„Við núverandi aðstæður þegar við eigum í erfiðleikum með evruna, en þar kemur AGS mjög við sögu, eru gild rök fyrir því að frambjóðandinn verði frá Evrópu og að hann njóti stuðnings þjóða heims,“ sagði Merkel.

Ýmsir hafa verið nefndir sem arftakar Strauss-Kahns en líklegasti kandidatinn er talinn Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands. Hún yrði fyrsta konan sem gegndi embættinu. Lagarde hefur þótt standa sig sérstaklega vel á alþjóðavettvangi í embætti fjármálaráðherra Frakklands. Hún mun einnig hafa áunnið sér traust Angelu Merkel.




Tengdar fréttir

Strauss-Kahn sætir sjálfsvígseftirliti

Gordon Brown hefur verið nefndur sem næsti forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sérstaklega er fylgst með Dominique Strauss-Kahn til að tryggja að hann taki ekki eigið líf í fangelsinu á Rikers-eyju.

Strauss-Kahn hættir sem forstjóri AGS

Dominique Strauss-Kahn hefur sagt af sér sem forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér.

Evrópulöndin vilja halda forstjórastólnum

Evrópulöndin innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) róa nú að því öllum árum að halda yfirráðum sínum yfir forstjórastól sjóðsins. Núverandi forstjóri, Dominique Strauss-Kahn, er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hann hafi beitt starfsstúlku á hóteli í New York kynferðislegu ofbeldi og efast er um að hann eigi afturkvæmt í embættið.

Þrýst á afsögn úr forstjórastóli

Þrýst er á Dominique Strauss-Kahn úr mörgum áttum um að stíga niður úr forstjórastóli Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS).

Geithner vill Strauss-Kahn strax úr embætti

Timothy Geithner fjármálaráðherra Bandaríkjanna segir að Dominique Strauss-Kahn sé í engri stöðu til þess að gegna forstjóraembættinu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og að stjórn sjóðins eigi strax að ráða annan forstjóra tímabundið.

AGS tjáir sig ekki um mál framkvæmdastjórans

Caroline Atkinson, framkvæmdastjóri ytri samskipta hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, segir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn muni ekkert tjá sig um mál framkvæmdastjóra sjóðsins, sem var handtekinn í gær.

Réttað að nýju yfir Strauss-Kahn

Réttarhöld yfir Dominique Strauss-Kahn hófust að nýju undir kvöld. Verjendur hans ítreka kröfu um að Strauss-Kahn verði látinn laus úr gæsluvarðhaldi gegn greiðslu tryggingagjalds.

Hver er þessi Dominique Strauss-Kahn?

Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, mun neita því að hafa framið kynferðisbrot gegn hótelþernu þegar að hann verður færður fyrir dómara í dag. Þetta segja verjendur hans í samtali við CNN. Hann var handtekinn í gær vegna meints brots og ákærður í morgun.

Strauss-Kahn úrskurðaður í gæsluvarðhald í New York

Dominique Strauss-Kahn forstjóri Alþjóða gjaldeyrissjóðsins var í dag úrskurðaður í gæsluvarðhald í New York, sakaður um gróf kynferðisbrot . Hann kemur aftur fyrir dómara hinn tuttugasta þessa mánaðar.

Strauss-Kahn í hinu alræmda Riker Island fangelsi

Dominique Strauss-Kahn forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur verið fluttur í fangaklefa í hinu alræmda Riker Island fangelsi í New York. Þar mun hann dvelja fram á föstudag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×