Innlent

Skoða hringsiglingu um landið með skemmtiferðaskipum

Franskt útgerðarfélag skemmtiferðaskipa er að skoða grundvöll þess að hafa skemmtiferðaskip í reglulegum siglingum umhverfis landið á sumrin og gæfist Íslendingum þá kostur á að fara hringferð um landið sjóleiðina.

Félagið gerði tilraun í fyrrasumar með siglingar frá Hafnarfirði til Grímseyjar, með viðkomu í Grundarfirði á Ísafirði og Akureyri, og til baka.

Farþegarnir komu með flugi til landsins og fóru aftur út með flugi og voru farþegaskiptin í Hafnarfirði. Ákveðið er að halda þessum ferðum áfarm í sumar og kanna nánar möguleika á hringsiglingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×