Innlent

GPS tæki stolið úr bíl í Seljahverfi

Brotist var inn í bíl í Seljahverfi í Breiðholti í nótt og úr honum stolið GPS staðsetningatæki. Þjófurinn komst undan.

Að sögn lögreglu hefru verið mikið um þjófnað á slíkum tækjum úr bílum undanfarið, enda munu þau vera gjaldgeng í fíkniefnaheiminum og auðseljanleg á svartamarkaðnum.

Lögregla hvetur eigendur slíkra tækja til að taka þau með sér inn á kvöldin, þar sem þau eru yfirleitt ekki fest í bílana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×