Steingrímur: Ekki æskilegt að hækka skatta frekar Hafsteinn Hauksson skrifar 17. maí 2011 18:43
Fjármálaráðherra telur eðlilegt að skoða áhrif skattabreytinga á mismunandi hópa, en úttekt OECD bendir til að einstæðir foreldrar á Íslandi hafi tekið á sig mestu hækkanirnar. Hann segir ekki æskilegt að hækka skatta frekar. Samkvæmt skattaúttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD jókst skattbyrði einstæðra foreldra tveggja barna, með tekjur undir meðallagi, meira en tvöfalt á milli áranna 2009 og 2010 í krónum talið. Eins og fréttastofa greindi frá í gær var hlutfallsaukningin mun minni hjá öðrum hópum sem úttektin tók til, þó þar hafi raunar verið litið fram hjá ákveðnum lífeyrisgreiðslum. Fréttastofa spurði Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hvort þetta væri í anda sitjandi ríkisstjórnar. „Það þarf nú að skoða þær forsendur sem þarna eru bornar saman, og lesa þar inn í launaþróun og margt fleira," segir Steingrímur. „Aðalatriðið er nú það að þessi skýrsla, þvert á allan sönginn hér, sýnir það að skattbyrðin er enn undir meðaltali á Íslandi, samanborið við OECD. Eftir sem áður erum við eitt af Norðurlöndunum, þar sem er sterkt velferðarkerfi sem fjármagnað er með opinberum tekjum. Það að Ísland skuli vera undir meðaltali OECD, þrátt fyrir þessar breytingar, sýnir hvar við erum stödd í þessum efnum; almennt er skattbyrði ekki þung á Íslandi." Það sé þó eðlilegt að gefa áhrifum skattkerfisbreytinganna á einstaka hópa gaum. „Það er alveg á sínum stað að skoða útkomu einstakra hópa, eins og til dæmis hvernig einstæðir foreldrar koma undan þessum breytingum. Það er flókið samspil sem þar þarf að líta til, og einnig hin hliðin; bætur og stuðningur sem kemur úr öðrum áttum. Það nægir ekki að skoða bara skattkerfið eitt þegar afkoma einstakra hópa eru skoðuð." En er svigrúm fyrir frekari skattahækkanir fyrst Ísland er undir meðaltali OECD? „Nei, það er ekki æskilegt að þurfa að hækka skatta mikið, og var náttúrulega óæskilegt að þurfa að gera það yfir höfuð," segir Steingrímur. „En hefðum við ekki farið í þær tekjuöflunaraðgerðir sem við þó gerðum, þá hefðu tekjur ríkisins haldið áfram að minnka. Með þeim breytingum sem við höfum gert höfum við fyrst og fremst náð fram tvennu; við höfum stórkostlega lagfært dreifingu skattbyrðarinnar, hlíft hinum tekjulægstu og lagt meiri byrðar á þá sem betur eru settir. Við höfum einnig náð að stöðva tekjufall ríkisins sem efnahagshrunið hafði í för með sér," segir Steingrímur, sem segist í það heila tekið ánægður með aðgerðirnar til að draga úr fjárlagahallanum. Fjármálaráðherra segir þó eðlilegt að skoða hvernig einstakir hópar eins og einstæðir foreldrar komi út úr breytingum á skattkerfinu. Þar nægi þó ekki að líta eingöngu til skattkerfisin, heldur samspils við aðra þætti eins og bætur og stuðning úr öðrum áttum.
Mest lesið Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Fleiri fréttir Útkall vegna ferðamanna sem lokaðir eru inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Sjá meira