Íslenski boltinn

Kristján: Frábær frammistaða hjá öllum

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Eftir sex umferðir erum við sex stigum á undan Íslandsmeisturunum, það er vel gert að okkar hálfu,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, eftir leikinn.

„Við vörðum að kappi í kvöld  og héldum hreinu í fjórða leiknum í sumar , en góður varnarleikur skilaði okkur þessum sigri. Ég er heilt yfir virkilega sáttur með frammistöðuna hjá leikmönnunum í leiknum í kvöld".

„Markmið okkar eru mörg hver að ganga upp og ég er bara virkilega sáttur hvernig sumarið hefur byrjað hjá liðinu. Það væri ofboðslega gaman að vera í toppbaráttunni í allt sumar og jafnvel koma einhverjum á óvart,“ sagði Kristján.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×