Innlent

Hross hlupu í veg fyrir mótórhjólahóp

Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd/Úr safni
Mynd tengist frétt ekki beint. Mynd/Úr safni
Ökumaður mótórhjóls var fluttur á slysadeild um klukkan eitt í dag eftir að tvö hross hlupu í veg fyrir ellefu manna mótórhjólahóp á Skagavegi á Sauðárkróki.

Ökumaðurinn lenti aftan á mótórhjóli sem var fyrir framan hann og missti jafnvægið í kjölfarið. Hann er ekki talinn vera alvarlega slasaður en var fluttur á slysadeild til aðhlynningar, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×