Innlent

Vatnsberinn í miðbæinn

= mynd Þegar Vatnsberinn var pantaður hjá Ásmundi var listaverkinu ætlaður staður á horni Bankastrætis og Lækjargötu. Þegar höggmyndin var tilbúin spruttu hins vegar upp miklar deilur þar sem margir töldu myndina sem var gefin af konunni með vatnsföturnar einfaldlega ljóta. Myndin er samsett.
= mynd Þegar Vatnsberinn var pantaður hjá Ásmundi var listaverkinu ætlaður staður á horni Bankastrætis og Lækjargötu. Þegar höggmyndin var tilbúin spruttu hins vegar upp miklar deilur þar sem margir töldu myndina sem var gefin af konunni með vatnsföturnar einfaldlega ljóta. Myndin er samsett.
Borgarráð hefur samþykkt að höggmyndin Vatnsberinn eftir Ásmund Sveinsson verði flutt ofan af holtinu við Veðurstofu Íslands og hún staðsett á horni Lækjargötu og Bankastrætis, samkvæmt tillögu Listasafns Reykjavíkur.

Ásmundur Sveinsson var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar og var á meðal þeirra sem kynntu fyrir Íslendingum nýja formskrift í myndlist 20. aldar, að því er fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

„Verkum hans var ekki alltaf jafn vel tekið, en með tímanum hafa þau fest sig í sessi sem ein af birtingarmyndum íslenskrar sagnahefðar, samfélags og náttúru á 20. öld. Hann sótti innblástur í íslenska náttúru og bókmenntir. Ásmundur lauk við Vatnsberann árið 1937 og er hann eitt þekktasta verk hans.“

 Talið er að Vatnsberanum hafi verið ætlað að standa nálægt Bernhöftsbrunninum, sem var síðasti brunnurinn í Reykjavík, til minningar um vatnsberana sem settu svip sinn á gamla miðbæinn í kringum aldamótin 1900, að því er fram kemur í tilkynningunni. „Brunnurinn var staðsettur í bakarabrekkunni svokölluðu, nánar tiltekið á Bakarastíg sem nú er Bankastræti. Brunnurinn og bakarabrekkan draga nöfn sín af Tönnes Daniel Bernhöft bakara, sem rak bakarí þar sem nú er Bankastræti 2 allt frá 1845. Bernhöft var athafnamaður og lét grafa brunn vestan við bakaríið.“

Þó nokkrar deilur komu upp þegar staðsetja átti Vatnsberann í borgarlandinu á sínum tíma, en höggmyndin hefur staðið á holtinu við Veðurstofu Íslands frá árinu 1967. Segja má að styttan verði komin heim þegar búið verður að koma henni fyrir á horni Lækjargötu og Bankastrætis en unnið er að útfærslu flutningsins sem fram mun fara á næstu vikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×