Íslenski boltinn

Rafn Andri: Völsungarnir eru með sprækt lið

Henry Birgir Gunnarsson á Kópavogsvelli skrifar
Rafn Andri Haraldsson kom Blikum á bragðið gegn Völsungi í kvöld og átti ágætis leik í liði Blika sem máttu hafa mikið fyrir sigrinum.

"Þjálfarinn var ekki 100 prósent sáttur við þennan leik en við unnum og það er það sem skiptir máli," sagði Rafn Andri en Blikar voru lengi út úr klefanum og ræða þjálfarans greinilega löng.

"Völsungur er með virkilega sprækt lið og sterkir fram á við. Þeir gerðu okkur erfitt fyrir og það er ekkert gefins í þessu.

"Ég veit ekki hvað var að hjá okkur. Þeir voru bara sprækir en við ekki alveg upp á okkar besta. Það fór samt ekki mikið um mig undir lokin. Við hefðum átt að vera búnir að klára þennan leik fyrr."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×