Innlent

Strandveiðisjómenn halda til veiða

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Allir strandveiðisjómenn, sem vettlingi geta valdið á norðausturlandi, hafa siglt fleytum sínum út á sjó í nótt og í morgun til strandveiða.

Á þeim svæðum er strandveiðikvótinn ekki búinn í þessum mánuði þar sem þrálátar norðanáttir hafa hindrað alla sjósókn, en nú hefur vindur lagst í suðlægar áttir og mánaðamótin nálgast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×