Formúla 1

Vettel vann spennandi mót á Spáni

Sebastian Vettel fagnar sigri á Katalóníu brautinni í dag.
Sebastian Vettel fagnar sigri á Katalóníu brautinni í dag. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Sebastian Vettel hjá Red Bull vann fjórða mót sitt á árinu, þegar hann kom fyrstur í endamark í Formúlu 1 mótinu á Spáni í dag. Hann varð aðeins 0.630 sekúndum á undan Lewis Hamilton á McLaren, en Jenson Button á McLaren varð þriðji.

Mark Webber var fremstur á ráslínu í dag á Red Bull, en heimaðurinn Fernando Alonso sá við öllum fremstu mönnum og komst í fyrsta sætið eftir frábæra byrjun í rásmarkinu. En hann náði ekki að halda góða byrjun út kepppnina, en leiddi hana þó fram að tuttugasta hring.

Þá náði Hamilton forystunni þegar Alonso tók þjónustuhlé. Hamilton var í forystu í mótinu á undan Vettel, en þegar Hamilton fór í sitt annað þjónustuhlé í 24 hring náði Vettel forystunni. Báðir höfðu þá lokið við að taka tvö þjónustuhlé. Þeir tóku síðan tvö þjónustuhlé til viðbótar en staðan á milli þeirra breyttist ekki hvað sæti varðar.

Undir lokin sótti Hamilton oft stíft að Vettel, sem náði þó að halda fengnum hlut til loka mótsins. Þeir Vettel og Hamilton voru í sérflokki í mótinu þegar uppi var staðið og Vettel er nú kominn með 118 stig í keppni ökumanna, en Hamilton er með 77.

Tímarir og staðan frá autosport.com

Lokastaðan

1. Vettel Red Bull-Renault 1:39:03.301

2. Hamilton McLaren-Mercedes + 0.630

3. Button McLaren-Mercedes + 35.697

4. Webber Red Bull-Renault + 47.966

5. Alonso Ferrari + 1 hringur

6. Schumacher Mercedes + 1 hringur

7. Rosberg Mercedes + 1 hringur

8. Heidfeld Renault + 1 hringur

9. Perez Sauber-Ferrari + 1 hringur

10. Kobayashi Sauber-Ferrari + 1 hringur

Staðan í stigamótinu

1. Vettel 118 1. Red Bull-Renault 185

2. Hamilton 77 2. McLaren-Mercedes 138

3. Webber 67 3. Ferrari 75

4. Button 61 4. Renault 46

5. Alonso 51 5. Mercedes 40

6. Rosberg 26 6. Sauber-Ferrari 11

7. Heidfeld 25 7. Toro Rosso-Ferrari 6

8. Massa 24 8. Force India-Mercedes 4




Fleiri fréttir

Sjá meira


×