Íslenski boltinn

Enn ein Blikastúlkan með slitið krossband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Greta Mjöll Samúelsdóttir og Jóna Kristín Hauksdóttir hafa báðar slitið krossband á síðustu árum.
Greta Mjöll Samúelsdóttir og Jóna Kristín Hauksdóttir hafa báðar slitið krossband á síðustu árum. Mynd/Anton
Óheppnin virðist elta Blikastúlkur þegar kemur að krossbandaslitum því það lítur út fyrir að Hildur Sif Hauksdóttir sé sjötti leikmaður kvennaliðs Breiðabliks á þremur árum sem slítur krossband í hné.

Jóna Kristín Hauksdóttir, systir Hildar, vekur athygli á þessarri ótúlegri staðreynd á twitter-síðu sinni í kvöld. Hún sleit sjálf krossband sumarið 2008.

Hildur Sif átti góða innkomu í Breiðabliksliðið síðasta sumar og skoraði þá 3 mörk í 14 leikjum en hún er fædd árið 1993.

Blikastúlkur sem hafa slitið krossbönd á síðustu árum:Ásta Einarsdóttir

Jóna Kristín Hauksóttir

Erna Björk Sigurðardóttir

Greta Mjöll Samúelsdóttir

Dagmar Arnardóttir.

Hildur Sif Hauksdóttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×