Innlent

Mörg hundruð kíló af járnstöngum féllu af flutningabíl við Hörpuna

Mynd frá vettvangi. Mynd/Vilhelm
Mynd frá vettvangi. Mynd/Vilhelm
Vörubíll missti mörg hundruð kílóa af járnstöngum fyrir utan tónlistarhúsið Hörpu nú fyrir stundu. Járnin runnu af pallinum þegar bíllinn tók beygjuna.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu eru tafir á umferð við Hörpuna og eru ökumenn beðnir um að sýna biðlund á meðan farminum er komið aftur upp á. Vörubíllinn lokar alveg annari akreininni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×