Innlent

Átta ára fangelsisdómur fyrir dópsmygl staðfestur

Amfetamínvökvinn. Konan bar að litháískur karlmaður hefði gefið sér bílinn, sem vökvinn var falinn í.
Amfetamínvökvinn. Konan bar að litháískur karlmaður hefði gefið sér bílinn, sem vökvinn var falinn í.
Hæstiréttur hefur staðfest átta ára dóm Héraðsdóms Reykjaness yfir Elenu Neuman, þýskri fertugri konu, sem sakfelld var fyrir að reyna að smygla til landsins á síðasta ári tæplega 20 lítrum af vökva sem innihélt amfetamínbasa.

Konan tók við vökvanum í Litháen og flutti þaðan falinn í eldsneytistanki bifreiðar til Þýskalands. Þaðan flutti hún vökvann með sama hætti til Danmerkur. Síðan lá leiðin með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar þar sem vökvinn fannst við leit í ágúst. Úr þessu vökvamagni hefði verið unnt að framleiða allt að 20,9 kíló af hreinu amfetamínsúlfati, sem samsvarar 153 kílóum af efni miðað við tíu prósenta styrkleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×