Innlent

Sex fjölveiðiskip leita að makríl

Að minnsta kosti sex íslensk fjölveiðiskip eru nú komin inn í færeysku lögsöguna að leita að makríl, en ekki hafa borist fréttir af árangri.

Torfurnar sem fundust við Vestmannaeyjar fyrir mánaðamótin, hafa ekki fundist aftur og því leita skipin svona langt. Kvótinn í sumar er um 150 þúsund tonn og gott verð er á makrílafurðum á heimsmarkaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×