Innlent

Enginn sáttafundur boðaður í deilu flugvirkja

Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilu flugvirkja hjá Icelandair við Samtök atvinnulífsins og hófst annað skyndiverkfall flugvirkjanna klukkan sex í morgun og stendur í fjórar klukkusutndir.

Icelandair hefur því frestað brottför allra véla þar til upp úr tíu sem þýðir seinkun á öllu flugi félagsins til og frá landinu í dag.

Samtök ferðaþjónustunnar hafa lýst þungum áhygjum yfir þessari vinnudeilu, og óttast hún muni letja erlenda ferðamenn til að koma hingað til lands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×