Innlent

Jussanam fær ríkisborgararétt

Allsherjarnefnd Alþingis leggur til að tónlistarkonan brasilíska, Jussanam Da Silva, fái ríkisborgararétt. Nefndin lagði í dag fram frumvarp með nöfnum fimmtíu einstakling sem hún leggur til að verði veittur ríkisborgararéttur.

Sem kunnugt er stóð til að Jussanam yrði vísað úr landi eftir að hún skildi við eiginmann sinn. Í framhaldinu misst hún vinnu sína á frístundaheimili í Reykjavík. Jussanam barðist fyrir því að fá að vera hér áfram, og innanríkisráðuneytið veitti Jussanam varanlegt dvalarleyfi fyrr á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×