Innlent

Vélhjólamaður slasaðist alvarlega

Vélhjólamaður slasaðist alvarlega og missti meðvitund þegar hann féll á hjóli sínu á Hafnarfjarðarvegi í gærkvöldi.

Hann var meðvitundarlaus þegar að var komið og var hann fluttur á slysadeild Landsspítalans. Tildrög slyssins eru óljós þar sem lögregla hefur ekki getað rætt við manninn, en frumrannsókn bendir til að hann hafi misst sjórn á hjólinu og fallið í götuna, frekar en að bíll hafi átt hlut að máli.

Lögreglan og rannsóknanefnd umferðarslysa vinna að rannsókn málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×