Skordýrafræðingur auglýsir eftir geitungum Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 7. júní 2011 18:55
Sjaldan hefur verið eins lítið um geitunga í byrjun sumars líkt og nú. Skordýrafræðingur man ekki eftir öðru eins ástandi og segir geitungastofninn hérlendis eiga bágt. Vorið hefur verið óvenju kalt og kvarta margir yfir því að hitann skorti. Það gæti hins vegar glatt suma að einn af fylgifiskum þessa kalda vors er sá að geitungarnir virðast ekki vera að ná sér á strik Erling Ólafsson, skordýrafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, hefur fylgst vel með geitungum síðustu árin. Aðspurður um það hvernig geitungarnir komi undan vetri svara hann því til að hann auglýsi eftir þeim því þeir hreinlega sjáist ekki. Hann hafi til að mynda aðeins séð einn og muni ekki eftir öðru eins ástandi. Erling segir erfitt að segja til um hvort að geitungarnir geti náð sér á strik síðar í sumar ef það hlýnar. Kuldi líkt og nú hafi ekki þekkst síðustu árin. Þá hafi veðrið verið jafnara og geitungastofninn haldist svipaður ár frá ári. Hann hafi grun um að geitungastofninn eigi frekar bágt núna. Fjórar tegundir geitunga voru hér á landi í lok síðustu aldar. Húsageitungurinn tók að hverfa eftir aldamótin og hefur hann ekki sést í tvö ár. Holugeitungum hefur einnig fækkað og segir Erling að svo geti farið að þeir hverfi líka. Það muni þó ekki skaða lífríkið enda voru Íslendingar án geitunga í langan tíma áður en þeir námu hér land.
Mest lesið Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Kajakræðarar í hættu hífðir upp Innlent Önnur djúp lægð á leiðinni Veður Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Erlent Bíll alelda á Hellisheiði Innlent Ósáttir við að vera vísað frá Rússlandi gegn vilja sínum Erlent Fleiri fréttir Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Eitthundrað ár frá fyrsta flugi til Íslands Sjá meira